Leikskólinn Skýjaborg auglýsir lausar stöður við sumarafleysingar frá vori 2026
Óskað er eftir glöðum og jákvæðum leikskólakennurum / starfsfólki í sumarafleysingar í leikskólanum Skýjaborg Hvalfjarðarsveit. Ráðning er annars vegar frá 7. apríl, hins vegar 15. apríl og/eða í maí og fram í miðjan júlí eða út ágúst.
Leikskólinn er lokaður 10. júlí til og með 7. ágúst.
Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Við erum í því spennandi verkefni að stækka við okkur og erum að opna auka leikrými í færanlegu húsnæði á leikskólalóðinni og með því fjölgar börnum. Í Skýjaborg er lögð áhersla á umhverfismennt, útinám, snemmtæka íhlutun í máli og læsi og sjálfsprottinn leik. Skólinn er grænfánaskóli og gildi skólans eru: Vellíðan, virðing, metnaður og samvinna.
Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir.
Heimasíða leikskólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara eða leiðbeinenda í leikskóla.
- Vinna í samvinnu við leikskólakennara, deildarstjóra og skólastjórnendur.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu*, háskólamenntun og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af vinnu með börnum
- Góð samskiptahæfni
- Góð íslenskukunnátta
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Fagmennska og lausnamiðuð hugsun
- Hæfni til að vinna í teymi
*Ef ekki fást leikskólakennarar verður horft til menntunar og reynslu. Við hvetjum því öll áhugasöm til að sækja um.
Hlunnindi í starfi
- 35 klst. vinnuvika / 7 klst. vinnudagur. Afleysing er í húsi fyrir styttingunni.
- Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30.
- 6 skipulagsdagar á ári.
Umsóknarfrestur til og með 24. mars 2026.
Fáist leikskólakennari til starfa, nýtur hann forgangs í starfið á grundvelli laga nr. 95/2019. Möguleiki getur skapast á áframhaldandi ráðningu frá hausti. Við hvetjum leikskólakennara til að sækja um. Leyfisbréf leikskólakennara fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Eyrún Jóna Reynisdóttir í síma 4338530 eða með því að senda fyrirspurn á
eyrun@hvalfjardarsveit.is.
Launakjör er samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um og skal umsókn ásamt starfsferilskrá og leyfisbréfs skilað í gegnum Alfreð eða í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is.