Fara í efni

Leik-og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar - laus störf

Leikskólakennari / leiðbeinandi óskast til starfa í Skýjaborg 

 

Laus er 100% staða leikskólakennara / leiðbeinanda í leikskólanum Skýjaborg. 

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

 

Að vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara

Að skipuleggja faglegt starf undir stjórn deildarstjóra

 

Hæfniskröfur: 

 

Leyfisbréf leikskólakennara 

Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg 

Góðir skipulagshæfileikar 

Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum 

Góð íslenskukunnátta

 

Ef ekki fæst leikskólakennari verður litið til menntunar og reynslu. Starfið hentar báðum kynjum. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar má finna hjá leikskólastjóra, Eyrúnu Jónu Reynisdóttur, í síma 433 8530 / 892 5510 og á netfanginu eyrun.jona.reynisdottir@hvalfjardarsveit.is 

 

Um tímabundið starf er að ræða til og með 5. júlí 2019, með möguleika á sumarvinnu í ágúst. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst. Umsóknarfrestur um starfið er til 14. apríl næstkomandi og skal umsóknum ásamt starfsferilskrá skilað í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun.jona.reynisdottir@hvalfjardarsveit.is. 

 

Afleysingastarf í Heiðarskóla

 

Auglýst er eftir starfsmanni í tilfallandi afleysingastörf í Heiðarskóla. Óskað er eftir starfsmanni sem er tilbúinn að stökkva inn í afleysingu með stuttum fyrirvara og sinna fjölbreyttum störfum s.s. í mötuneyti, við þrif, gæslu og í íþróttahúsi. Um er að ræða tilfallandi tímavinnu samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Vinnutími er ekki bundinn við dagvinnutíma.

Nánari upplýsingar má fá hjá skólastjóra, Sigríði Láru Guðmundsdóttur, í síma 8968158. Einnig má senda fyrirspurn á netfangið sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is.