Fara í efni

Lausar stöður við Skýjaborg

Leikskólakennari/leiðbeinandi 50-60% staða
Og
Afleysing leikskólakennara/leiðbeinanda 100% staða tímabundið í jan/feb

Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi með allt að 40 börn. Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir. Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi.
Í Skýjaborg er stytting vinnuvikunnar með 7 klst. vinnudag / 35 stunda vinnuviku (miðað við 100% vinnu) og er afleysing í húsi fyrir styttingunni.

Vegna fjölgunar á börnum frá janúar vantar okkur leikskólakennara/leiðbeinanda í 50-60% hlutastöðu frá 2. janúar – 5. júlí 2024. Einnig vantar okkur leikskólakennara/leiðbeinanda í 100% afleysingu frá janúar og fram í miðjan febrúar.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Ef ekki fást leikskólakennarar verður litið til menntunar og reynslu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir leikskólastjóri, Eyrún Jóna Reynisdóttir, í síma 433 8530 / 892 5510 og á netfangi. Umsóknarfrestur er til 17. desember nk. og skal umsókn ásamt starfsferilskrá skilað í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is. Ef fjölgar börnum eða breytingar verða, er möguleiki á auknu starfshlutfalli.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.