Fara í efni

Lausar stöður leikskólakennara/leiðbeinenda í Skýjaborg næsta skólaár

Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi með allt að 40 börn. Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir. Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi. Í Skýjaborg er stytting vinnuvikunnar með 7 klst. vinnudag / 35 stunda vinnuviku og er afleysing í húsi fyrir styttingunni.

Skýjaborg auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar fyrir næsta skólaár:

  • Leikskólakennari/leiðbeinandi tvær 100% stöður.
  • Leikskólakennari/leiðbeinandi 100% staða afleysingar til 3. maí 2023 (með möguleika á áframhaldandi vinnu út sumarið).

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar veitir Eyrún Jóna Reynisdóttir leikskólastjóri í síma 433-8530. Umsóknarfrestur til og með 8. júní næst komandi og skal senda umsóknir ásamt starfsferilsskrá í tölvupósti á netfang leikskólastjóra: eyrun@hvalfjardarsveit.is

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ef ekki fást leikskólakennarar verður litið til menntunar og reynslu. Laun samkvæmt SNS og viðkomandi stéttarfélags.