Lausar stöður kennara í Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar - Heiðarskóla
Heiðarskóli auglýsir eftir metnaðarfullum kennurum sem eru reiðubúnir að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við samstarfsfólk og foreldra.
Um er að ræða:
- 80% staða kennara; stærðfræði á unglingastigi og íþróttir í 1. – 10. bekk. Ráðning frá 1. ágúst 2025.
- 70% staða list- og verkgreinakennara; textílmennt og heimilisfræði. Tímabundin ráðning frá 1. ágúst 2025 – 31. júlí 2026.
- 100% staða sérkennara á miðstigi. Ráðning frá 1. ágúst 2025.
Menntunar og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu.
- Reynsla af teymiskennslu og fjölbreyttum kennsluháttum æskileg.
- Hæfni til að skipuleggja nám í fjölbreyttum nemendahópi þar sem allir fá að njóta sín á eigin forsendum.
- Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
- Færni í samvinnu og teymisvinnu.
- Góð íslenskukunnátta.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 433 8525.
Umsóknarfrestur er til og með 9. maí nk. og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra; sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is.
Öllum umsóknum verður svarað.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar er starfræktur á tveimur starfsstöðvum í sveitarfélaginu, Heiðarskóli við Leirá við Skarðsheiði og Skýjaborg í Melahverfi. Gildi skólans eru vellíðan, virðing, metnaður og samvinna. Skólinn er grænfánaskóli og leggur áherslu á umhverfismennt og útinám. Unnið er með byrjendalæsi. Á leikskólasviðinu, Skýjaborg, dvelja um 40 börn á aldrinum 1-6 ára. Á grunnskólasviðinu, Heiðarskóla, eru um 90 nemendur í 1. – 10. bekk.