Fara í efni

Lausar stöður kennara í Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar - Heiðarskóla

Heiðarskóli auglýsir eftir metnaðarfullum kennurum sem eru reiðubúnir að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við samstarfsfólk og foreldra.

Um er að ræða:

  • 100% staða umsjónarkennari; almenn kennsla í teymi á unglingastigi. Ráðning til framtíðar.

  • 100% staða umsjónarkennari; almenn kennsla í teymi á yngsta stigi. Ráðning til framtíðar.

  • 80% staða íþróttakennara. Tímabundin ráðning frá 1. ágúst 2024 – 31. júlí 2025.

  • 100% staða kennara; ísatkennsla o.fl. Tímabundin ráðning frá 1. ágúst 2024 – 31. júlí 2025.

  • 70% staða list- og verkgreinakennara; textílmennt og heimilisfræði. Tímabundin ráðning frá 1. ágúst 2024 – 31. júlí 2025.

Menntunar og hæfniskröfur 

  • Leyfisbréf til kennslu.
  • Reynsla af teymiskennslu og fjölbreyttum kennsluháttum æskileg. 
  • Hæfni til að skipuleggja nám í fjölbreyttum nemendahópi þar sem allir fá að njóta sín á eigin forsendum. 
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
  • Færni í samvinnu og teymisvinnu. 
  • Góð íslenskukunnátta. 

Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 433 8525. Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is. 
Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

 Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar er starfræktur á tveimur starfsstöðvum í sveitarfélaginu, Heiðarskóli við Leirá við Skarðsheiði og Skýjaborg í Melahverfi. Gildi skólans eru vellíðan, virðing, metnaður og samvinna. Skólinn er grænfánaskóli og leggur áherslu á umhverfismennt og útinám. Unnið er með byrjendalæsi. Á leikskólasviðinu, Skýjaborg, dvelja um 40 börn á aldrinum 1-6 ára. Á grunnskólasviðinu, Heiðarskóla, eru um 100 nemendur í 1. – 10. bekk.