Lausar stöður í Heiðarskóla - stuðningsfulltrúi og frístundastarfsmaður
Heiðarskóli auglýsir eftirfarandi stöður:
- 71% stöðu stuðningsfulltrúa, vinnutími 8:00 – 13:30 fjóra daga vikunnar og 8:00 – 14:10 einn dag vikunnar. Um tímabundna stöðu er að ræða í febrúar og mars 2026.
- 40% stöðu starfsmanns í frístund, vinnutími 12:30 – 16:30 mánudaga til fimmtudaga. Um tímabundna stöðu er að ræða frá 1. febrúar til 9. júní.
Leitað er að einstaklingum með góða hæfni í mannlegum samskiptum sem eru reiðubúnir að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við foreldra og samstarfsfólk.
Hæfniskröfur:
- Reynsla af vinnu með börnum er æskileg
- Góðir skipulagshæfileikar
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 23. janúar 2026.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 433 8525 eða 896 8158 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um og skal umsókn ásamt starfsferilskrá send í tölvupósti á netfangið: sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is
Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar er starfræktur á tveimur starfsstöðvum í sveitarfélaginu; grunnskólinn Heiðarskóli er við Leirá við Skarðsheiði og leikskólinn Skýjaborg í Melahverfi. Gildi skólans eru vellíðan – virðing – metnaður – samvinna. Á leikskólasviðinu, Skýjaborg, dvelja um 40 börn á aldrinum 1- 6 ára. Á grunnskólasviðinu, Heiðarskóla, eru um 90 nemendur í 1. – 10. bekk.
Heimasíða skólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/