Laus staða umsjónarkennara á yngsta stigi
Heiðarskóli auglýsir eftir metnaðarfullum kennara sem er reiðubúinn að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við samstarfsfólk og foreldra.
Um er að ræða:
- 100% stöðu umsjónarkennara á yngsta stigi. Ráðningin er tímabundin frá 1. ágúst 2026 – 31. desember 2026, 81% í grunnskólanum Heiðarskóla og 19% í leikskólanum Skýjaborg.
Menntunar og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu.
- Reynsla af teymiskennslu og fjölbreyttum kennsluháttum æskileg.
- Hæfni til að skipuleggja nám í fjölbreyttum nemendahópi þar sem allir fá að njóta sín á eigin forsendum.
- Reynsla og menntun í byrjendalæsi.
- Reynsla af leikskólastarfi.
- Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
- Færni í samvinnu og teymisvinnu.
- Góð íslenskukunnátta.
Umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 433 8525 eða 896 8158 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið: sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um og skal umsókn ásamt starfsferilskrá send í tölvupósti á netfangið: sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is
Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar er starfræktur á tveimur starfsstöðvum í sveitarfélaginu; grunnskólinn Heiðarskóli er við Leirá við Skarðsheiði og leikskólinn Skýjaborg í Melahverfi. Gildi skólans eru vellíðan, virðing, metnaður og samvinna. Skólinn er grænfánaskóli og leggur áherslu á umhverfismennt og útinám. Unnið er með byrjendalæsi. Á leikskólasviðinu, Skýjaborg, dvelja um 40 börn á aldrinum 1- 6 ára. Á grunnskólasviðinu, Heiðarskóla, eru um 90 nemendur í 1. – 10. bekk.
Heimasíða skólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/