Laus staða stuðningsfulltrúa og starfsmanns í frístund
Heiðarskóli auglýsir eftirfarandi stöður:
- 94% stöðu stuðningsfulltrúa og frístundastarfsmanns, vinnutími 8:00 – 16:00 fjóra daga vikunnar og 8:00 – 13:30 á föstudögum. Um tímabundna stöðu er að ræða frá 24. ágúst 2026 – 8. júní 2027.
- 40% stöðu starfsmanns í frístund, vinnutími 12:30 – 16:30 mánudaga til fimmtudaga. Um tímabundna stöðu er að ræða frá 24. ágúst 2026 – 8. júní 2027.
Það er möguleiki á að skipta starfinu upp og ráða í frístundastarfið og stuðningsfulltrúastarfið ef ekki næst að ráða starfsmann í 94% starf.
Leitað er að einstaklingum með góða hæfni í mannlegum samskiptum sem eru reiðubúnir að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við foreldra og samstarfsfólk.
Hæfniskröfur:
- Reynsla af vinnu með börnum er æskileg
- Góðir skipulagshæfileikar
- Lipurð og sveigjanleiki í starfi
- Góð íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 19. ágúst 2026.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Anna Margrét Tómasdóttir skólastjóri í síma 433 8525 eða 896 8158 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið anna.margret@hvalfjardarsveit.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Áhugasamir einstaklingar, eru hvattir til að sækja um og skal umsókn ásamt starfsferilskrá send í tölvupósti á netfangið:
anna.margret@hvalfjardarsveit.is
Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar er starfræktur á tveimur starfsstöðvum í sveitarfélaginu; grunnskólinn Heiðarskóli er við Leirá við Skarðsheiði og leikskólinn Skýjaborg í Melahverfi. Gildi skólans eru vellíðan, virðing, metnaður og samvinna. Á leikskólasviðinu, Skýjaborg, dvelja um 40 börn á aldrinum 1- 6 ára. Á grunnskólasviðinu, Heiðarskóla, eru um 90 nemendur í 1. – 10. bekk.
Heimasíða skólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/