Fara í efni

Laus staða stuðningsfulltrúa og starfsmanns í frístund

Heiðarskóli auglýsir eftirfarandi stöður:

  • 94% stöðu stuðningsfulltrúa og frístundastarfsmanns, vinnutími 8:00 – 16:00 fjóra daga vikunnar og 8:00 – 13:30 á föstudögum.
    Um tímabundna stöðu er að ræða frá 14. ágúst 2026 – 8. júní 2027.  
  • 40% stöðu starfsmanns í frístund, vinnutími 12:30 – 16:30 mánudaga til fimmtudaga.
    Um tímabundna stöðu er að ræða frá 24. ágúst 2026 – 8. júní 2027.

Leitað er að einstaklingum með góða hæfni í mannlegum samskiptum sem eru reiðubúnir að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við foreldra og samstarfsfólk.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af vinnu með börnum er æskileg 
  • Góðir skipulagshæfileikar 
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2026.  

Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 433 8525 eða 896 8158 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. 

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um og skal umsókn ásamt starfsferilskrá send í tölvupósti á netfangið: sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is

Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar er starfræktur á tveimur starfsstöðvum í sveitarfélaginu; grunnskólinn Heiðarskóli er við Leirá við Skarðsheiði og leikskólinn Skýjaborg í Melahverfi. Gildi skólans eru vellíðan, virðing, metnaður og samvinna. Á leikskólasviðinu, Skýjaborg, dvelja um 40 börn á aldrinum 1- 6 ára. Á grunnskólasviðinu, Heiðarskóla, eru um 90 nemendur í 1. – 10. bekk. 

Heimasíða skólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/