Fara í efni

Laus staða skólaliða í Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar – Heiðarskóla

Laus er staða skólaliða í 91% stöðuhlutfalli í Heiðarskóla, vinnutími er frá kl. 8:00 til 15:17.
Um framtíðarstarf er að ræða frá og með 15.08. 2022.

Skólaliði sér um ræstingu og vinnur í samstarfi við umsjónarteymi á unglingastigi með börnum. Við leitum að einstaklingi með færni í mannlegum samskiptum auk frumkvæðis og sjálfstæðis í vinnubrögðum. Reynsla af starfi með börnum og í ræstingu er æskileg. Störfin henta öllum kynjum.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir, skólastjóri, í síma 896 8158. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 12. ágúst 2022 og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra: sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is