Fara í efni

Laus staða list- og verkgreinakennara í Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar - Heiðarskóla

Heiðarskóli auglýsir eftir metnaðarfullum kennara sem er reiðubúinn að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við samstarfsfólk og foreldra. Um tímabundna stöðu er að ræða frá 1. ágúst 2022 – 31. júlí 2023. Kennslugreinar eru myndmennt, smíði og tónmennt.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu.
  • Reynsla af teymiskennslu og fjölbreyttum kennsluháttum æskileg.
  • Hæfni til að skipuleggja nám í fjölbreyttum nemendahópi þar sem allir fá að njóta sín á eigin forsendum.
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
  • Færni í samvinnu og teymisvinnu.
  • Góð íslenskukunnátta.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 433 8525.
Umsóknarfrestur er til og með 27. júní  nk og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra; sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Skólinn er starfræktur á tveimur starfsstöðvum í sveitarfélaginu, Heiðarskóli við Leirá við Skarðsheiði og Skýjaborg í Melahverfi. Gildi skólans eru vellíðan – virðing – metnaður – samvinna. Skólinn er grænfánaskóli og leggur áherslu umhverfismennt og útinám. Unnið er með byrjendalæsi. Á leikskólasviðinu, Skýjaborg, dvelja um 40 börn á aldrinum 1-6 ára. Á grunnskólasviðinu, Heiðarskóla, eru um 90 nemendur.