Fara í efni

Laus staða leikskólakennara/leiðbeinanda við Skýjaborg

Leikskólakennari / leiðbeinandi óskast í 72% starf við leikskólann Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit.

Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi með allt að 40 börn. Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir. Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi. Í Skýjaborg er stytting vinnuvikunnar með 7 klst. vinnudag / 35 stunda vinnuviku og er afleysing í húsi fyrir styttingunni.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Ef ekki fást leikskólakennarar verður litið til menntunar og reynslu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir leikskólastjóri, Eyrún Jóna Reynisdóttir, í síma 433 8530 / 892 5510 og á netfangi. Umsóknarfrestur er til 22. janúar nk. og skal umsókn ásamt starfsferilskrá skilað í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is. Starfið er frá 1. febrúar 2023. Ef fjölgar börnum eða breytingar verða, er möguleiki á auknu starfshlutfalli. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.