Landsbyggðarvagnar Strætó bs. fá undanþágu frá lokun Hvalfjarðarganga
08. apríl 2026
Vegagerðin hefur tilkynnt um að landsbyggðarvagnar Strætó bs. fái undanþágu frá lokun Hvalfjarðarganga og að tímaáætlun vagna muni haldast óbreytt á meðan viðhaldi gangna stendur.
Vegagerðin hefur áður tilkynnt um að vegna viðhalds í Hvalfjarðargöngum er göngunum lokað frá kl. 21:30 að kvöldi til kl. 6:00 að morgni tímabilið 7. apríl - 29. maí nk.