Lag og ljóð Hvalfjarðarsveitar
Í tilefni af 20 ára afmæli Hvalfjarðarsveitar var samið ljóð og lag tileinkað sveitarfélaginu. Höfundur ljóðs er Gunnar J. Straumland og tónskáld er Jósep Gíslason.
Verkið var frumflutt við hátíðlega athöfn á afmælistónleikum Hvalfjarðarsveitar í Hallgrímskirkju í Saurbæ um síðastliðna helgi, þar sem fram komu um 30 flytjendur, sem allir eiga tengingu við Hvalfjarðarsveit. Dagskráin var fjölbreytt og glæsileg og endurspeglaði vel þann mikla mannauð og tónlistarlíf sem finna má í sveitarfélaginu.
Við færum Gunnari J. Straumland og Jósep Gíslasyni innilegar þakkir fyrir þeirra framlag. Einnig fær Tónleikanefnd Sumartónleika Hallgrímskirkju í Saurbæ sérstakar þakkir fyrir glæsilegt skipulag og utanumhald um tónleikana. Einnig færum við öllum flytjendum sem tóku þátt okkar bestu þakkir fyrir þeirra framlag.
Hvalfjarðarsveit
Inn í Botni, út með fjarðarströndum,
undir hlíðum Skarðsheiðar og víðar,
unir fólk og eilífðina smíðar
upp úr því sem lífið ber að höndum.
Akrafjallið yfir sveitir lítur,
Það ýmislegt um lífið mætti segja.
Sýnist vera ævintýraeyja
sem upp á þurru ræktarlandi flýtur.
Bjarma slær á Botnssúlur um óttu,
með bjarta sýn þá áfram lífið gengur.
Eins og stoltur vaðfugl, vonum lengur,
veður kringum fjörð á sumarnóttu.
Einu sinni’ í Hvalfirðinum hvessti
hvinurinn var fjörugur og villtur.
Oftast nær þó er hann frekar stilltur
svo yfirleitt er logn í okkar minni.
Litafagurt land er milli sæva,
litskrúðugt er mannlíf okkar sveitar.
Ef þú hérna lífsgleðinnar leitar
leitin sjálf er okkar mesta gæfa.
(viðlag)
Sameinuð er sveitin milli sæva.
Í hamingjunnar heimasveit
við hyllum okkar sælureit
Gunnar J. Straumland