Fara í efni

Kynningarfundur um niðurstöður mengunareftirlits og umhverfisvöktunar á Grundartanga

Í samræmi við ákvæði starfsleyfa Norðuráls, Elkem Ísland og Als álvinnslu, boðar Umhverfisstofnun til opins kynningarfundar um niðurstöður mengunarvarnaeftirlits og umhverfisvöktunar á Grundartanga þriðjudaginn 30. maí nk. kl. 16:00 að Miðgarði í Hvalfjarðarsveit. Fundinum verður einnig streymt.

Hlekkur á streymi: ust.is/upplysingafundur-grundartangi-2023

Dagskrá fundarins:

  • Mengunarvarnaeftirlit Umhverfisstofnunar og niðurstöður eftirlits 2022 – Sigríður Magnúsdóttir
  • Niðurstöður umhverfisvöktunar á Grundartanga – Eva Yngvadóttir
  • Erindi frá Norðurál – Þorsteinn Ingi Magnússon
  • Erindi frá Elkem – Sigurjón Svavarsson
  • Umræður

Fundarstjóri: Aðalbjörg Birna Guttormsdóttir, sviðstjóri á sviði umhverfisgæða, Umhverfisstofnun

Tengt efni: