Fara í efni

Kynningarfundur - deiliskipulög

Kynningarfundur vegna breytinga á deiliskipulögum sem eru til umfjöllunar hjá Hvalfjarðarsveit, verður haldinn á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, mánudaginn 22. janúar næstkomandi kl. 14:00.

Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu vegna Brekku og nýs deiliskipulags fyrir Narfabakka úr landi Narfastaða.

Á fundinum mun Skipulagsfulltrúi Hvalfjarðarsveitar fara yfir efni tillaganna og svara fyrirspurnum um þær.