Fara í efni

Kynning á Uppbyggingarsjóði Vesturlands

Ráðgjafar á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi verða með kynningu á sjóðnum á næstu dögum þar sem hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar um gerð umsókna, styrkhæfni verkefna o.fl. 

 

Viðvera verður á eftirtöldum stöðum:

 

- Stykkishólmur mánudaginn 14 janúar kl.10.00-12.00 í ráðhúsinu í Stykkishólmi.

- Grundarfjörður mánudaginn 14 janúar kl.13.00-15.00 í ráðhúsinu í Grundarfirði.

- Ólafsvík mánudaginn 14 janúar kl.16.00-18.00 í Átthagastofu í Ólafsvík

- Búðardalur þriðjudaginn 15 janúar kl.13.00-15.00 í ráðhúsinu í Búðardal

- Akranesi þriðjudaginn 15 janúar kl.10.00-13.00 í Landsbankahúsinu við Akratorg 2 hæð

- Hvalfjarðarsveit þriðjudaginn 15 janúar kl.13.15-15.00 í Stjórnsýsluhúsinu í Melahverfi

- Borgarnesi miðvikudaginn 16 janúar kl.10.00-12.00 á skrifstofu SSV að Bjarnabraut 8

 

Að þessu sinni verða veittir styrkir til atvinnuþróunar, nýsköpunar í atvinnulífi, menningarmála og stofn- og rekstrarstyrkja menningarmála.

 

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands, en umsóknarfrestur rennur út 20 janúar n.k.

 

Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi http://ssv.is/ má nálgast ýmsar upplýsingar og þar er einnig að finna umsóknarformið http://ssv.is/uppbyggingarsjodur-vesturlands/

Notaður er íslykill til innskráningar.