Fara í efni

Kross og Krosslands eystra - Aðalskipulagsbreyting

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti 28. janúar 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin nær til svæðis samfélagsþjónusta S8, sem er um 1,3 ha að stærð og aukinsíbúðafjölda. Með breytingunni verður landnotkun svæðisins skilgreind sem íbúðabyggð í stað samfélagsþjónustu. Jafnframt nær breytingin til íbúðarbyggðar ÍB4 og ÍB5 þar sem aukið byggingarmagn er heimilað. Samhliða er unnið að landsskiptum milli Kross (L198194) og Krosslands eystra (L205470).

Kynningartími tillögunnar er frá 27. apríl – 8. júní 2026.

Tillagan er auglýst til sýnis í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, hér.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Jökull Helgason

Deildarstjóri Umhverfis- og skipulagsdeildar