Kross 1. áfangi - Deiliskipulagsbreyting
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti 25. mars 2026 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Kross 1. áfanga, skv. 1. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagið tekur til um 7,4 ha svæðis þar sem gert er ráð fyrir blandaðri íbúðarbyggð. Breytingin felst í skiptum á landspildum milli eiganda Krosslands Eystra (L205470) og Kross (L198194). Um 1600 m2 skiki af landi Kross sameinast Krosslandi Eystra og er tekinn út af deiliskipulagi. Þess í stað fara um 1600 m2 af landi Krosslands eystra til Hvalfjarðarsveitar og verður hluti af landi Kross og skilgreint sem grænt svæði undir leiksvæði.
Kynningartími er frá 11. maí - 22. júní 2026, hér í Skipulagsgátt.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Umhverfis- og skipulagsdeild