Fara í efni

Matvælasjóður formlega tekinn til starfa

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, opnaði í vikunni formlega fyrir umsóknir í nýjan Matvælasjóð. Frumvarp ráðherra um stofnun sjóðsins var samþykkt á Alþingi í apríl sl. og var alls 500 milljónum króna varið til stofnunar sjóðsins og verður þeim úthlutað á þessu ári. Hlutverk sjóðsins að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum.

Umsóknarfrestur er 21. september.

Nánar á vef stjórnarráðsins.