Fara í efni

Kjörskrá og utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Kjörskrá Hvalfjarðarsveitar vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara þann 16. maí nk. liggur frammi til kjördags, almenningi til sýnis, á afgreiðslutíma skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, stjórnsýsluhúsinu, Innrimel 3, Melahverfi.

Afgreiðslutími skrifstofu Hvalfjarðarsveitar er mánudaga til fimmtudaga kl. 10-15 og föstudaga kl. 10-12.

Minnt er á að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin og fer hún fram hjá Sýslumanni.

 

Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri