Kjörfundur í Hvalfjarðarsveit
04. maí 2026
Kjörfundur í Hvalfjarðarsveit vegna sveitarstjórnarkosninga laugardaginn 16. maí 2026.
Samkvæmt samþykkt sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar fer samhliða fram óbindandi viðhorfskönnun, meðal kjörgengra íbúa, um afstöðu til sameiningar við önnur sveitarfélög.
Kjörstaður er í Stjórnsýsluhúsinu við Innrimel 3 í Melahverfi.
Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 21:00.
Kjósendur eru hvattir til að koma snemma á kjörstað.
Kjósendum ber að hafa persónuskilríki meðferðis.
Kjörstjórn