Fara í efni

Kennsla í tölvulæsi fyrir 60+ í Hvalfjarðarsveit

Námskeið í tæknilæsi á snjalltæki, til dæmis varðandi spjaldtölvur og snjallsíma er fyrirhugað í Hvalfjarðarsveit sem hér segir:

Þriðjudaginn 31.janúar, fimmtudaginn 2.febrúar, þriðjudaginn 7.febrúar, fimmtudaginn 9. febrúar frá kl. 13:00-15:00

Námskeiðið er haldið í Heiðarskóla. 
Námskeiðin eru haldin í fjórum hlutum, hver hluti tekur tvo klukkutíma.
Skráning hjá Ívari kennara í síma 695-2579 eða í tölvupósti á ivar.orn73@gmail.com til og með föstudagsins 27. janúar nk.

Hámarksfjöldi þátttakenda á námskeiðið er 8. Tímasetningar á námskeiðum eru með fyrirvara um næga þátttöku.

Námskeiðin, sem kostuð eru af félags- og vinnumálaráðuneytinu eru þátttakendum að kostnaðarlausu. Þetta er liður í átaki ráðuneytisins um eflingu tæknilæsis hjá fólki sextíu ára og eldra um allt land.

Eftir námskeiðið eiga þátttakendur að hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Rafrænum skilríkjum og notkun þeirra
  • Heimabanka og stafrænum viðskiptum
  • Netöryggi
  • Samfélagsmiðlum og efnisveitum
  • Notkun tölvupósts, forrita, smáforrita og netleitar