Fara í efni

Katrín Líf og íslenski danshópurinn hrepptu brons

Katrín Líf Vignisdóttir, 13 ára nemandi í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit, hreppti brons ásamt danshópnum Dansi án hindrana á alþjóðlegu Special Olympics-móti í Ahrensburg í Þýskalandi.

Dans án hindrana er danshópur á vegum Danslistarskóla JSB. Hópurinn hélt til Þýskalands í lok október til að keppa fyrir Íslands hönd á mótinu.
Hægt er að fylgjast með hópnum inn á Facebook

Special Olympics eru alþjóðleg samtök sem skapa fólki með þroskahömlun og skyldar skerðingar tækifæri til að æfa íþróttir, taka framförum og keppa við aðra. Mótið í Ahrensburg er eitt fjölmargra móta sem fara fram undir merkjum samtakanna og skapa iðkendum ný og spennandi tækifæri.

Danssaga Íslands á vettvangi Special Olympics er ung en fyrsti íslenski dansarinn tók þátt í danskeppni samtakanna erlendis árið 2021 og árið 2025 sendi Ísland sitt fyrsta danspar á heimsleika Special Olympics. Katrín Líf og danshópurinn hennar hafa nú haldið áfram að skrifa þá sögu.

Við í Hvalfjarðarsveit erum stolt af Katrínu Líf og óskum henni og öllum hópnum innilega til hamingju með glæsilegan árangur.