Fara í efni

Katanesvegur Grundartanga - Aðalskipulagsbreyting

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti 28. janúar 2026 að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Með breytingunni verður hluta athafnasvæðisins austan til á Grundartangasvæðinu breytt í iðnaðarsvæði. Svæðið er, innan jarðarinnar Eystra Kataness (L133194), og heyrir undir Faxaflóahafnir sem annast rekstur hafna og tengda starfsemi. Áætlað er fiskeldi á 18,6 ha lóð, sem er skv. gildandi deiliskipulagi nr. 34 við Katanesveg. Deiliskipulagi verður breytt í kjölfar breytingar aðalskipulags. Fyrirhuguð uppbygging verður í samráði sveitarfélags og Faxaflóahafna með grænar áherslur í starfsemi og uppbyggingu á Grundartanga í samræmi við samkomulag landeiganda og sveitarfélags. Áætluð framleiðsla í fiskeldi verður um 28.000 tonn á ári með hámarkslífmassa upp á um 18.000 tonn. Gert er ráð fyrir bæði seiðaeldi og matfiskeldi en heildareldisrými stöðvarinnar verður um 255.000 m³ og aflþörfin um 8,4 MW. Í deiliskipulagi verður gerð nánari grein fyrir uppbyggingu og mögulega nýjum lóðamörkum.

Kynningartími tillögunnar er frá 27. apríl – 8. júní 2026.

Tillagan er auglýst í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar hér.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Umhverfis- og skipulagsdeildar