Kallað eftir listaverkum frá ungu fólki í Hvalfjarðarsveit
09. september 2026
Menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar kallar eftir listaverkum frá ungmennum á aldrinum 0–18 ára í Hvalfjarðarsveit.
Verkin verða hluti af Listasýningu unga fólksins, sem haldin verður í tengslum við Barnamenningarhátíð Vesturlands dagana 1.–31. október 2026. Sýningin verður sett upp í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar.
Við hvetjum ungt og skapandi fólk í sveitarfélaginu til að taka þátt og sýna list sína, fjölbreytt listform eru velkomin.
Skráning fer fram með því að hafa samband við Andreu Ýr, verkefnastjóra á velferðar- og fræðsludeild, andrea@hvalfjardarsveit.is.