Kæru íbúar - við óskum eftir ábendingum og/eða tillögum við undirbúning fjárhagsáætlunar
Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Hvalfjarðarsveitar fyrir árin 2027–2030 og er íbúum Hvalfjarðarsveitar gefinn kostur á að senda inn ábendingar og/eða tillögur í tengslum við þá mikilvægu vinnu.
Allar tillögur og ábendingar verða teknar til skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar. Ábendingar geta t.d. snúið að nýjum verkefnum, tillögum til hagræðingar í starfsemi Hvalfjarðarsveitar, verkefnum sem leggja þarf áherslu á eða annað sem íbúar telja mikilvægt að taka til skoðunar.
Áhugasamir íbúar eru hvattir til að skila inn tillögum eða ábendingum eigi síðar en 30. september 2026 í gegnum ábendingarhnapp á heimasíðu sveitarfélagsins: Senda ábendingu til sveitarstjórnar | Hvalfjarðarsveit eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is - merkt: Fjárhagsáætlun 2027.
Einnig viljum við segja frá því að fyrri umræða um fjárhagsáætlun er áætluð í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar um miðjan október og í kjölfarið, tímanlega fyrir seinni umræðu, verður boðað til íbúafundar þar sem fyrirliggjandi áætlun, eftir fyrri umræðu, verður kynnt og boðið upp á umræðu. Staður og stund verður kynnt frekar þegar nær dregur.