Fara í efni

Jólatrjáasala í Álfholtsskógi 2023

Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Skilmannahrepps í Álfholtsskógi verður sunnudaginn 10. desember og helgina 16. - 17. desember frá kl 11:30 – 15:30 alla dagana.

Jólatrjáasalan er fjáröflunarstarfsemi félagsins til að viðhalda skóginum og bæta við hann, en hann er nú „Opinn Skógur“ til útivistar allan ársins hring. Fjögur stór jólatré úr skóginum hafa verið sett upp í Akranesbæ að vanda og eitt í Hvalfjarðarsveit.

Trén eru einkum Sitkagreni og Stafafura en um þessi jól ætlum við einnig að selja falleg tré úr skógarlundi okkar í Brynjudal þ.á.m. Blágreni.

Verðskrá:
        - 1m   7.000 kr.
1 – 1,5 m   9.000 kr.
1,5 – 2 m 12.000 kr.
2 – 2,5 m 14.000 kr.
Einnig til sölu tröpputré á kr. 4.000 og 6.000 og grenigreinar.

Allir hjartanlega velkomnir. Gott að hafa sög með sér. Skógarmenn leiðbeina á svæðinu og eftir skógarhöggið er boðið uppá kaffi/kakó og piparkökur.

Öllum er velkomið að gerast félagar í skógræktarfélaginu. Árgjald kr. 2500.