Fara í efni

Jólatrjáasala í Álfholtsskógi 2022

Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Skilmannahrepps úr Álfholtsskógi verður dagana 10. og 11. desember og laugardaginn 17. desember frá kl 11:30 – 15:30 alla dagana.

Jólatrjáasalan er fjáröflunarstarfsemi félagsins til að viðhalda skóginum og bæta við hann en hann er nú „Opinn Skógur“ til útivistar allan ársins hring. Fjögur stór jólatré úr skóginum hafa verið sett upp í Akranesbæ að vanda og tvö í Hvalfjarðarsveit.

Trén eru einkum sitkagreni og stafafura, vistvæn að sjálfsögðu og fyrir hvert tré sem fellt er, er plantað 10 trjám næsta vor.

Verðskrá:
        - 1m  6.000 kr
1 – 1,5 m   8.000 kr
1,5 – 2 m 10.000 kr
2 – 2,5 m 12.000 kr
Einnig til sölu tröpputré á kr 3.000 og grenigreinar.

Allir hjartanlega velkomnir.

Gott að hafa sög með sér. Skógarmenn leiðbeina á svæðinu og eftir skógarhöggið er boðið uppá kaffi/kakó og piparkökur.

Öllum velkomið að gerast félagar í skógræktarfélaginu.  Árgjald kr. 2.500.