Fara í efni

Jólatrjáasala í Álfholtsskógi

Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Skilmannahrepps úr Álfholtsskógi verður dagana 12. og 13. desember frá kl 11:30 – 15:30 báða dagana.

Jólatrjáasalan er fjáröflunarstarfsemi félagsins til að viðhalda skóginum og bæta við hann en hann er nú „Opinn Skógur“ til útivistar allan ársins hring. Fimm stór jólatré úr skóginum hafa verið sett upp í Akranesbæ að vanda og eitt í Hvalfjarðarsveit.

Trén eru einkum sitkagreni og stafafura, vistvæn að sjálfsögðu og fyrir hvert tré sem fellt er, er plantað 10 trjám næsta vor. Félagar skógræktarfélagsins fá 1000 kr afslátt af einu keyptu tré.

Verðskrá:   
    - 1m        5000 kr
1 – 1,5 m     7000 kr
1,5 – 2 m     8000 kr
2 – 2,5 m     9000 kr
Einnig til sölu tröpputré á kr 2500 og grenigreinar.

Allir hjartanlega velkomnir. Gott að hafa sög með sér. Skógarmenn leiðbeina á svæðinu og eftir skógarhöggið er boðið uppá kaffi/kakó og piparkökur ef Covid leyfir.