Fara í efni

Jólatréssala í Álfholtsskógi

Árleg jólatréssala Skógræktarfélags Skilmannahrepps úr Álfholtsskógi verður dagana 14. og 15. desember frá kl 12:30 – 15:30 báða dagana.

Jólatréssalan er fjáröflunarstarfsemi félagsins til að viðhalda skóginum og bæta við hann en hann er opinn til útivistar allan ársins hring.

Trén eru einkum sitkagreni og stafafura, vistvæn að sjálfsögðu og fyrir hvert tré sem fellt er, er plantað 10 trjám næsta vor. Félagar skógræktarfélagsins fá 1000 kr afslátt af einu keyptu tré.

Verðskrá:

–        1m          5.000 kr
1 – 1,5 m         7.000 kr
1,5 – 2 m        8.000 kr
2 – 2,5 m       9.000 kr

Allir hjartanlega velkomnir.
Gott að hafa sög með sér.
Skógarmenn leiðbeina á svæðinu og eftir skógarhöggið er boðið uppá kaffi/kakó og piparkökur.