Jólaljósin tendruð
27. nóvember 2025
Í morgun voru jólaljósin á jólatrénu á Vinavelli tendruð með aðstoð leikskólabarna Skýjaborgar sem komu syngjandi glöð. Að venju var sungið og gengið í kringum jólatréð en að því loknu var gott að gæða sér á mandarínum.
Leikskólabörnum og starfsfólki Skýjaborgar eru færðar bestu þakkir fyrir komuna, hjálpina, gleðina og sönginn sem þau færa árlega við tendrun jólatrésins.
Myndir frá viðburðinum má finn hér í myndasafni.
Íbúar og gestir eru hvattir til að njóta Vinavallar, jólaljósa og jólatrésins á aðventunni og jólahátíðinni.