Jafnlaunavottun 2026-2029
Jafnréttisstofa hefur staðfest endurnýjun jafnlaunavottunar hjá Hvalfjarðarsveit til ársins 2029. Jafnlaunavottunin er staðfesting þess að jafnlaunakerfi sveitarfélagsins samræmist kröfum jafnlaunastaðalsins, ÍST85:2012. Vottunaraðili sveitarfélagsins var BSI á Íslandi ehf., sem vann faglega úttekt innan stofnana Hvalfjarðarsveitar á launum starfsfólks, starfaflokkun og öðrum þáttum er hafa áhrif á kjör karla og kvenna
Tilgangur jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og miða að auknu launajafnrétti kynjanna. Vottunin staðfestir að hjá Hvalfjarðarsveit er unnið eftir ferli sem tryggir að málsmeðferð og ákvarðanir í launamálum feli ekki í sér kynbundna mismunun.
Hvalfjarðarsveit er stolt af þessum árangri og óskar stjórnendum og starfsfólki sveitarfélagsins til hamingju með áfangann.