Fara í efni

Íþrótta- og tómstundastyrkur

Á nýju ári þykir rétt að minna á Íþrótta-og tómstundastyrk Hvalfjarðarsveitar fyrir börn og ungmenni allt að 18 ára aldri með lögheimili í sveitarfélaginu.  

Styrkur til íþrótta-og tómstundaiðkunar árið 2019 er kr. 60.000.  Einnig er hægt að sækja um styrk til keppnisferða og æfingaferða erlendis.

Kvittanir fyrir greiðslu gjalda ásamt bankaupplýsingum og kennitölu forráðamanns má senda á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is eða koma með á skrifstofu sveitarfélagsins.

Umsóknir ásamt fylgigögnum vegna ferða erlendis skal senda til félagsmála- og frístundafulltrúa Hvalfjarðarsveitar, felagsmal@hvalfjardarsveit.is

Reglur um Íþrótta-og tómstundastyrki Hvalfjarðarsveitar má sjá hér