Íþrótta- og frístundastyrkir Hvalfjarðarsveitar
Hvalfjarðarsveit styrkir börn og ungmenni allt að 18 ára aldri til íþrótta- og tómstundaiðkunar með lögheimili í Hvalfjarðarsveit. Styrkirnir eru ætlaðir sem hvatning til frekari framfara og til að mæta útlögðum kostnaði vegna æfinga og keppni.
Styrkirnir miðast við almanaksárið.
Frístundastyrkur
Frístundastyrkur er 80.000 krónur á barn á ári. Hægt er að ráðstafa honum við skráningu í gegnum Abler, ef félag er ekki skráð hjá Abler þarf að senda rafrænan reikning til sveitarfélagsins.
Styrkir vegna keppnis- og æfingaferða erlendis
Hægt er að sækja um styrk vegna keppnisferða erlendis að fjárhæð 30.000 krónur á ári og styrk vegna æfingaferða erlendis að fjárhæð 30.000 krónur á ári. Hvor styrkur er veittur einu sinni á ári á hvern einstakling.
Sérstakur styrkur vegna tekjulágra heimila
Börn og ungmenni á tekjulágum heimilum geta átt rétt á sérstökum íþrótta- og frístundastyrk að fjárhæð 30.000 krónur á ári, til viðbótar við almenna frístundastyrkinn. Styrkurinn er veittur þegar hámarksfjárhæð almenna styrksins hefur verið nýtt.
Nánari upplýsingar má finna í reglum um íþrótta- og frístundastyrki Hvalfjarðarsveitar inn á vef sveitarfélagsins.