Fara í efni

Íbúafundur í Miðgarði um rannsóknarborun á Grundartanga

Haldinn verður opinn íbúafundur í Miðgarði fimmtudaginn 2. júlí kl. 16:00 þar sem kynnt verður fyrirhuguð rannsóknarborun við Grundartangaveg.

Fundurinn er á vegum Elkem, Þróunarfélags Grundartanga og Carbfix og tengist framtíðarsýn um öflugan og framsækinn iðngarð á svæðinu. Með boruninni verður aflað upplýsinga um eiginleika berglaganna á svæðinu, svo sem gegndræpi, sprungukerfi og flæðiskilyrði neðanjarðar, auk upplýsinga um hvers konar vatn er að finna á borstaðnum. Engin niðurdæling koldíoxíðs fer fram.

Á fundinum munu fulltrúar samstarfsaðila kynna verkefnið og framkvæmdina og svara spurningum fundargesta.
Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar verður fundarstjóri.
Kaffi og meðlæti verður í boði og vonast er til að sjá sem flesta.

Dagskrá

16:00 Húsið opnar og gestir boðnir velkomnir.
16:15 Framtíðarsýn fyrir svæðið kynnt.
16:30 Carbfix kynnir borunina, framkvæmdina og helstu staðreyndir.
17:00 Almennar umræður.