Hvalfjarðarsveit vill leggja sitt af mörkum í sameiginlegu átaki gegn verðbólgu
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti samhljóða á fundi sínum þann 29. september sl. að taka undir ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga um gjaldskrár sveitarfélaga árið 2027 og það sameiginlega átak sem þar er kallað eftir til að stuðla að auknum efnahagslegum stöðugleika.
Sveitarfélögin hafa lýst yfir vilja til að leggja sitt af mörkum með því að stefna að því að halda almennum hækkunum gjaldskráa innan 2,5% árið 2027. Hvalfjarðarsveit tekur heilshugar undir þá stefnu og mun vinna að henni við gerð fjárhagsáætlunar og ákvörðun gjaldskráa fyrir næsta ár.
Um leið leggur sveitarstjórn ríka áherslu á að hér sé um sameiginlegt verkefni að ræða. Forsenda þess að slíkt átak skili tilætluðum árangri er að ríkið komi með sama hætti að verkefninu og endurskoði fyrirliggjandi áform um hækkanir gjaldskráa og álaga sem áhrif hafa á heimili, fyrirtæki og sveitarfélög.
Sveitarstjórn telur mikilvægt að ríki og sveitarfélög gangi í takt og sýni ábyrgð í verki. Ekki er raunhæft að sveitarfélögin ein axli ábyrgð á því að halda aftur af gjaldskrárhækkunum á sama tíma og kostnaðarhækkanir eða auknar álögur af hálfu ríkisins hafa áhrif á rekstur þeirra og samfélagið í heild.
Markmið Hvalfjarðarsveitar og sveitarstjórnarstigsins alls er skýrt og sameiginlegt: að skapa aukinn efnahagslegan stöðugleika, stuðla að því að gerðir kjarasamningar haldi, verðbólga hjaðni og forsendur skapist fyrir lækkun vaxta.