Fara í efni

Starfsmaður óskast í vinnu við leikjanámskeið í tvær vikur í ágúst 2021

Hvalfjarðarsveit óskar eftir að ráða starfsmann í vinnu við leikjanámskeið í tvær vikur í ágúst 2021.

Tímabil: 9. til 20. ágúst 2021.
Starfsheiti: Starfsmaður á leikjanámskeiði.
Starfslýsing: Í starfinu felst vinna með börnum á leikjanámskeiði fyrir börn í 1. til 4. bekk. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á tímabilinu.

Hæfniskröfur:

  • Góð fyrirmynd, stundvísi og vinnusemi.
  • Reynsla af starfi með börnum æskileg.
  • Sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptahæfni.
  • Menntun sem tengist starfinu æskileg.
  • Frumkvæði og þolinmæði.
  • Hrein sakaskrá.
  • Góð íslenskukunnátta.

Vinnutími: Unnið er virka daga frá kl. 8:00 til kl. 16:00

Umsóknarfrestur er til og með 14. júlí 2021.

Umsækjendur eru beðnir að senda umsókn á hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is eða skila henni á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar. Nánari upplýsingar veitir félagsmálastjóri í síma 433-8500 á skrifstofutíma.