Fara í efni

Hvalfjarðarsveit meðal þátttökusveitarfélaga í úrgangsverkefni

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur hleypt af stokkunum innleiðingarverkefni þar sem markmiðið er að innleiða innheimtukerfi vegna meðhöndlunar úrgangs sem nefnist: „Borgað þegar hent er“. Verkefnið er leitt af Sambandi sveitarfélaga en auk þess eru Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Húsnæðis og mannvirkjastofnun aðilar að verkefninu. Fjórtán sveitarfélög taka þátt, þar á meðal Hvalfjarðarsveit.

Um áramótin tóku gildi lagabreytingar þar sem sveitarfélögum er gert að koma því þannig fyrir að innheimta verði sem næst raunkostnaði fyrir meðhöndlun úrgangs og að fast gjald skuli takmarkast við 50% til ársins 2025 og 25% eftir það. Þessar breytingar þýða að flest sveitarfélög þurfa að aðlaga gjaldskrár sínar og innheimtukerfi. Sveitarfélög þurfa að taka skref frá því að nota kerfi sem reiknar og innheimtir fast gjald, í að nota kerfi sem er sniðið að því magni og tegund úrgangs sem hver og einn lætur frá sér.

Leiðin sem farin verður í þessu verkefni snýst um að innheimt verði eftir rúmmáli og gerð úrgangs við heimili. Rekstur grenndar-, söfnunar- og móttökustöðva verður áfram fast gjald. Innheimt verður þá fyrir hvert ílát í gegnum Álagningakerfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar.

Sjá nánar á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga: https://www.samband.is/frettir/fjortan-sveitarfelog-innleida-borgad-thegar-hent-er/