Fara í efni

Hvalfjarðarsveit með jákvæðustu hreinu búferlaflutningana á Vesturlandi árið 2025

Á Vesturlandi voru hreinir búferlaflutningar jákvæðastir í Hvalfjarðarsveit árið 2025. Þetta kemur fram í 8. tölublaði Glefsu 2026 frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV).

Aðfluttir umfram brottflutta voru um 50 á hverja 1.000 íbúa í Hvalfjarðarsveit á árinu. Alls voru hreinir búferlaflutningar jákvæðir í fimm af átta sveitarfélögum á Vesturlandi.

Þegar litið er til tímabilsins 2021–2025 voru hreinir búferlaflutningar einnig jákvæðastir í Hvalfjarðarsveit á Vesturlandi og sveitarfélagið í níunda sæti á landsvísu samkvæmt samantektinni.

Umfjöllunin er eftir Vífil Karlsson og byggir á gögnum frá Hagstofu Íslands og Landmælingum Íslands. Hreinir búferlaflutningar sýna fjölda aðfluttra umfram brottflutta en taka ekki til fæðinga og dauðsfalla.

Nánar má lesa um niðurstöðurnar í Glefsu SSV, 8. tölublaði 2026. Glefsa - Búferlaflutningar 2025 - Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi