Hvalfjarðarsveit í áframhaldandi sókn – metnaðarfull uppbygging og traustur fjárhagur
Umfangsmikil uppbygging innviða, jákvæð rekstrarniðurstaða, lækkun fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði og aukinn stuðningur við menningar-, íþrótta- og æskulýðsstarf eru meðal helstu áherslna í fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar fyrir árin 2027–2030. Á árinu 2027 er gert ráð fyrir framkvæmdum fyrir ríflega 841 milljón króna og áframhaldandi uppbyggingu út allt áætlunartímabilið. Engar langtímaskuldir hvíla á sveitarfélaginu og er það skýrt markmið að standa undir fyrirhuguðum fjárfestingum án nýrrar lántöku.
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun 2028–2030 fór fram á fundi sveitarstjórnar fimmtudaginn 12. nóvember sl. Samþykkt var samhljóða að vísa áætluninni til síðari umræðu.
Jákvæð rekstrarniðurstaða og engar langtímaskuldir
Samkvæmt framlagðri fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að heildartekjur Hvalfjarðarsveitar á árinu 2027 nemi um 2,502 milljörðum króna og heildargjöld um 2,468 milljörðum króna.
Áætlaður rekstrarafgangur án tillits til fjármagnsliða er um 33 milljónir króna, en að teknu tilliti til fjármagnsliða er gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu upp á 88,8 milljónir króna.
Fjárhagsleg staða Hvalfjarðarsveitar er traust og líkt og undanfarin ár hvíla engar langtímaskuldir á sveitarfélaginu. Sú staða skapar mikilvægt svigrúm til áframhaldandi uppbyggingar og fjárfestinga í innviðum og þjónustu.
Það er jafnframt skýrt markmið sveitarstjórnar að viðhalda þessari stöðu og standa undir fyrirhuguðum framkvæmdum á næstu árum án þess að grípa þurfi til lántöku. Þannig er lögð áhersla á að metnaðarfull uppbygging og ábyrg fjármálastjórn fari áfram saman.
Ríflega 841 milljón króna í framkvæmdir árið 2027
Hvalfjarðarsveit hefur á undanförnum árum lagt ríka áherslu á uppbyggingu innviða og bætta þjónustu við íbúa. Sú stefna endurspeglast í framlagðri fjárhagsáætlun þar sem gert er ráð fyrir áframhaldandi umfangsmiklum fjárfestingum í þágu samfélagsins.
Á árinu 2027 er áætlað að verja ríflega 841 milljón króna til framkvæmda. Þar ber hæst byggingu nýs leikskóla í Melahverfi og áframhaldandi uppbyggingu samfélagsmiðstöðvarinnar í Heiðarborg.
Um er að ræða mikilvægar fjárfestingar í innviðum sveitarfélagsins sem ætlað er að efla grunnþjónustu, bæta aðstöðu til íþrótta og félagsstarfs og skapa enn betri skilyrði fyrir fjölskyldur og íbúa sveitarfélagsins.
Einnig eru í áætluninni sett fram skýr markmið um aukin sýnileika sveitarfélagsins, m.a. með auknu samtali og samvinnu við ferðaþjónustuna samanber áform um stuðning við þátttöku í Mannamóti ferðaþjóna.
Áframhaldandi uppbygging er jafnframt fyrirhuguð út allt áætlunartímabilið til ársins 2030. Markmiðið er að mæta þörfum samfélagsins til framtíðar og tryggja að innviðir og þjónusta þróist í takt við vöxt sveitarfélagsins.
Áfram lágt útsvarshlutfall og frekari lækkun fasteignagjalda af íbúðarhúsnæði
Samhliða umfangsmikilli uppbyggingu er lögð áhersla á að halda almennum álögum á íbúa og atvinnulíf hóflegum.
Við fyrri umræðu var samþykkt að miða við lækkun álagningarhlutfalls fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði úr 0,34% í 0,32% af fasteignamati. Útsvarsprósenta verður áfram 14,14% og álagning fasteignaskatts í B-flokki verður 1,32% og í C-flokki 1,65%.
Almennar gjaldskrár sveitarfélagsins hækka um 2,5%, í samræmi við fyrri yfirlýsingu sveitarstjórnar, og verður vísitölutenging gjaldskráa jafnframt felld niður þar sem við á.
Það er skýrt markmið sveitarstjórnar að almennar álögur í Hvalfjarðarsveit verði áfram hóflegar og að sveitarfélagið bjóði góð skilyrði til búsetu, atvinnurekstrar og uppbyggingar.
Aukinn stuðningur við menningar-, íþrótta- og æskulýðsstarf
Í fjárhagsáætluninni er einnig gert ráð fyrir verulegri aukningu á stuðningi við menningar-, íþrótta- og æskulýðsstarf, þ.e. styrkupphæð til úthlutunar úr menningarsjóði hækkar úr 900 þús.kr. í 1.800 þús.kr. og úthlutunarfjárhæð úr íþrótta- og æskulýðssjóði fer úr 750 þús.kr. í 1.500 þús.kr.
Með þessu vill sveitarstjórn styðja enn betur við það fjölbreytta og mikilvæga starf sem unnið er af félagasamtökum og öðrum aðilum innan sveitarfélagsins.
Öflugt félagsstarf, menningarlíf og fjölbreytt tækifæri til íþrótta og tómstunda eru mikilvægir þættir í að skapa lifandi og fjölskylduvænt samfélag. Auknum stuðningi er ætlað að skapa frekari tækifæri til þátttöku og efla samfélagslega virkni og samheldni meðal íbúa.
Áframhaldandi uppbygging á traustum grunni
Framlögð fjárhagsáætlun endurspeglar vilja sveitarstjórnar til að halda áfram þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað í Hvalfjarðarsveit á undanförnum árum.
Áherslan er á að fjárfesta í mikilvægum innviðum, efla þjónustu og samfélagsstarf og skapa góð skilyrði fyrir áframhaldandi þróun sveitarfélagsins. Um leið er lögð áhersla á að viðhalda traustri fjárhagsstöðu, halda sveitarfélaginu án langtímaskulda og tryggja að almennar álögur verði áfram hóflegar.
Með þessum áherslum er horft til framtíðar af metnaði og með það að leiðarljósi að Hvalfjarðarsveit verði áfram öflugt og eftirsóknarvert samfélag til búsetu og atvinnustarfsemi.
Fjárhagsáætlunin kynnt íbúum 16. nóvember
Sveitarstjórn samþykkti jafnframt að halda kynningarfundi um framkomna fjárhagsáætlun mánudaginn 16. nóvember nk. Þar verður farið yfir helstu forsendur áætlunarinnar, áherslur í rekstri sveitarfélagsins og fyrirhugaðar framkvæmdir á næstu árum.
Íbúar eru hvattir til að kynna sér áætlunina og taka þátt í umræðu um framtíð og áframhaldandi uppbyggingu Hvalfjarðarsveitar.
Fjárhagsáætlunin verður tekin til síðari umræðu og endanlegrar afgreiðslu í sveitarstjórn að lokinni frekari yfirferð, að óbreyttu þann 26. nóvember n.k.