Fara í efni

Hvalfjarðardagar 2026

Hvalfjarðardagar fóru fram dagana 13.–16. ágúst með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá víðs vegar um Hvalfjarðarsveit.

Hátíðin hófst á fimmtudeginum með opnu húsi hjá félagsstarfi eldri borgara í Stjórnsýsluhúsinu og föndri og þrautum á Bókasafni Akraness. Síðdegis fór fram litahlaup Ungmenna- og íþróttafélags Hvalfjarðarsveitar á Vinavelli þar sem þátttakendur böðuðu sig í litum. Um kvöldið var boðið upp á prjónakvöld í Miðgarði og tónleika heima í stofu í Skipanesi.

Á föstudeginum hélt dagskráin áfram á Vinavelli í Melahverfi þar sem sett var upp risastór hindrunarbraut. Síðdegis var kveikt upp í grillinu og íbúar komu saman, grilluðu og áttu góða stund. Um kvöldið tóku Hreimur og Vignir Snær síðan á móti gestum í Álfholtsskógi með útitónleikum í fallegu umhverfi.

Laugardagurinn var þéttskipaður og boðið upp á viðburði fyrir alla aldurshópa. Fjölskylduskemmtun fór fram á Vinavelli þar sem meðal annars var boðið upp á grillaðar pylsur og umhverfisverðlaun Hvalfjarðarsveitar afhent. Kvenfélagið Lilja stóð fyrir markaði og kaffisölu í Stjórnsýsluhúsinu og þar var jafnframt tíu frambærilegustu ljósmyndirnar í ljósmyndasamkeppni Hvalfjarðardaga til sýnis. BMX Brós sýndu listir sínar og Leikhópurinn Lotta sýndi Litaland. Afmælistónleikar Hvalfjarðarsveitar fóru síðan fram í Hallgrímskirkju í Saurbæ í tilefni af 20 ára afmæli sveitarfélagsins. Um 30 flytjendur, sem allir eiga tengingu við sveitina, stigu á stokk og buðu tónleikagestum upp á fjölbreytta og glæsilega dagskrá. Í lok tónleika var frumflutt lag og ljóð sem er samið sérstaklega í tilefni afmælisins. Höfundur ljóðs er Gunnar J. Straumland og tónskáld er Jósep Gíslason.

Á sunnudeginum var áfram nóg um að vera. Ratleikur fór fram á Byggðasafninu að Görðum og gestum gafst kostur á að heimsækja lista- og handverksfólk víðs vegar um Hvalfjarðarsveit. Fjölskyldudagur var haldinn í sundlauginni að Hlöðum með þrautabraut, fjársjóðsleit, tónlist, leikjum og sprelli. Hátíðinni lauk um kvöldið í Miðgarði þar sem Haraldur Benediktsson, oddviti Hvalfjarðarsveitar, flutti erindi þar sem hann rekur aðdraganda og sögu þess hvernig Grundartangi varð að einu mesta atvinnusvæði landsins.

Hvalfjarðardagar 2026 voru virkilega vel heppnaðir og þakkar Hvalfjarðarsveit öllum sem mættu kærlega fyrir komuna.
Hvalfjarðarsveit vill einnig færa öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum til skipulagningar og framkvæmdar hátíðarinnar hjartans þakkir, sem og þeim fjölmörgu styrktaraðilum sem gerðu Hvalfjarðardaga 2026 að veruleika.

Sérstakar þakkir fá verkefnastjórar Hvalfjarðardaga 2026, þeir Hjörvar Gunnarsson og Valdimar Ingi Brynjarsson, fyrir að skipuleggja og halda utan um hátíðarhöldin með glæsibrag.

Myndir frá Hvalfjarðardögum má sjá hér: