Fara í efni

Hvalfjarðardagar 2023 - ljósmyndakeppni og skreytingakeppni

Úrslit í ljósmyndasamkeppni og skreytingakeppni Hvalfjarðardaga 2023. Þemað í ljósmyndakeppninni var Sirkus í Hvalfjarðarsveit. Menningar og markaðsnefnd var sammála um að mynd sem Eyrún Jóna Reynisdóttir tók af dóttur sinni, Valey Rún Birkisdóttir,  bæri af í ljósmyndasamkeppninni.
Stjörnugrís veitti veglega gjafakörfu í vinning fyrir ljósmyndasamkeppnina. 

Í skreytingakeppninni var þemað "Sirkus" og valdi dómnefnd skreytinguna hjá Arney Þ. Guðjónsdóttur og Kristján V. Sigurgeirssyni, Lækjarmel 1 sem vinningshafa. Grand Hótel gaf gistingu með morgunmat í vinning fyrir skreytingakeppnina.

Öllum þáttakendum eru færðar bestu þakkir fyrir þátttökuna.

Hér fyrir neðan má sjá myndir af verðlaunahöfum og verkum þeirra.