Fara í efni

Hvalfjarðardagar 2018

Langar þig að taka þátt í skemmtilegri sumarhátíð í Hvalfjarðarsveit?

Ert þú með góða hugmynd og vilt framkvæma? Ertu með eitthvað áhugavert að sýna? Langar þig að bjóða fólki heim? Viltu taka þátt í að gera Hvalfjarðardaga 2018 að skemmtilegum viðburði?

Nú er komið að því að skipuleggja Hvalfjarðardaga. Óskað er eftir samstarfi við einstaklinga, félagasamtök og fyrirtæki í Hvalfjarðarsveit fyrir sumarhátíðina Hvalfjarðardagar sem haldin verður helgina 24.-26. ágúst en aðaláherslan verður á laugardaginn 25. ágúst.

Með ykkar þátttöku og öflugu samstarfi er hægt að halda áfram að bjóða upp á fjölbreytta viðburði og skemmtun sem bæði íbúar og gestir hafa áhuga á að sækja og njóta.

Gaman væri ef íbúar myndu skreyta hjá sér heimreiðar og götur en verðlaun verða veitt fyrir flottustu skreytinguna.

Ef þú hefur góða hugmynd eða áhuga á að vera með viðburð þá hvetjum við þig að hafa samband fyrir 18. júlí í síma 842 5585 (Ása Líndal) eða senda póst á netfangið hvalfjardardagar@hvalfjardarsveit.is

Hafir þú ekki aðgang að húsnæði til að hýsa viðburði eða sýningar en langar til að taka þátt þá ert þú eindregið hvött/hvattur til að hafa samband sem fyrst.