Fara í efni

Hval­fjarðar­göng – lokan­ir um hvíta­sunnu­helgi

Tilkynning af vef Vegagerðarinnar:
Hvítasunnuhelgin er mikil ferðahelgi og því mikilvægt að ferðalangar viti af lokun Hvalfjarðarganga vegna framkvæmda við nýja lýsingu.

Lokað:

  • Frá klukkan 21:30 fimmtudaginn 21. maí til klukkan 6:00 á föstudagsmorgun
  • Frá klukkan 21:30 sunnudaginn 24. maí til klukkan 6:00 á mánudagsmorgun
  • Frá klukkan 21:30 mánudaginn 25. maí til klukkan 6:00 á þriðjudagsmorgun

Opið:

  • Aðfaranótt laugardags
  • Aðfaranótt sunnudags

Framkvæmdir hafa staðið yfir í Hvalfjarðargöngum að nóttu til frá 7. apríl sl. Unnið er að endurnýjun á öllum lýsingarbúnaði ganganna sem hefur verið í notkun frá því að göngin voru opnuð árið 1998. Framkvæmdir í jarðgöngum eru flóknar og fara fram í þröngu rými og því er nauðsynlegt að loka göngunum meðan á þeim stendur.

Upphafleg verklok voru áætluð 29. maí og stefnir allt í að sú tímaáætlun muni standast.