Fara í efni

Húsvörður óskast

Hvalfjarðarsveit leitar að áhugasömum einstakling í starf húsvarðar í félagsheimilinu Fannahlíð. Starfshlutfallið er 18,62% og þrif í tímavinnu. Starfið felur í sér útleigu, þrif og umsjón yfir félagsheimilinu.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 11. október nk

Allar nánari upplýsingar veitir frístunda- og menningarfulltrúi Hvalfjarðarsveitar, Ása Líndal í síma 433-8500 eða á netfangið fristund@hvalfjardarsveit.is