Húsfyllir á fullveldishátíð Heiðarskóla
27. nóvember 2026
Það var húsfyllir í Heiðarskóla fimmtudaginn 26. nóvember þegar nemendur stigu á svið á árlegri fullveldishátíð skólans.
Nemendur á elsta stigi fluttu ávarp og kynntu dagskrána. Nemendur í 2. bekk fluttu trommuatriði og sungu síðan „Adam átti syni sjö“ ásamt nemendum í 1. bekk. Yngstu nemendurnir fluttu einnig „Jörð“ úr Þúsaldarljóðunum ásamt elstu börnunum í Skýjaborg. Hátíðardagskránni lauk með sýningu nemenda í 8.–10. bekk á söngleiknum Grease.
Boðið var upp á vöfflur, heitt súkkulaði og kaffi og rann ágóði hátíðarinnar í ferðasjóð nemendafélagsins.
Nemendur og starfsfólk fá kærar þakkir fyrir metnaðarfulla og skemmtilega dagskrá.