Fara í efni

Hrútur frá Súlunesi hlaut Heiðarhornið

Hin árlega hrútasýning Búnaðarfélags Hvalfjarðar fór fram föstudaginn 9. október í reiðhöllinni Æðarodda. Keppt var í flokkum hyrndra, kollóttra og mislitra hrúta.

Hvítur hyrndur hrútur frá Súlunesi var valinn besti lambhrútur sýningarinnar og hlaut hið eftirsótta Heiðarhorn, sérstakan verðlaunagrip sem veittur er fyrir besta lambhrút ársins á svæðinu.

Súlunes átti einnig sigurvegara í flokki kollóttra og hyrndra hrúta. Í flokki mislitra hrúta bar hrútur frá Bjarteyjarsandi sigur úr býtum.

Gestum var boðið upp á kjötsúpu í boði SS.

Hrútasýning hlaut styrk úr Menningarsjóði Hvalfjarðarsveitar árið 2026.

Myndir frá viðburðinum