Hreinsun rotþróa í Hvalfjarðarsveit 2026
26. júní 2026
Vinna við reglulega hreinsun rotþróa á svæði 3, hefst 20. júlí nk. Sjá mynd af svæði.
Hreinsitækni losar rotþrær á 3ja ára fresti á hverju svæði skv. samningi við Hvalfjarðarsveit.
Komi til þess að hreinsa þurfi rotþrær utan reglulegrar hreinsunar ber viðkomandi kostnað af henni skv. gjaldskrá Hreinsitækni.
Mikilvægt er fyrir eigendur rotþróa að huga að eftirfarandi þáttum:
- Læst hlið á þeim svæðum sem tæma á verða að vera ólæst, þannig að þjónustuaðili komist óhindrað að rotþróm.
- Rotþrær þurfa að vera aðgengilegar hreinsibíl og vel sýnilegar / merktar.
Nánari upplýsingar má fá í síma 433-8500 eða með því að senda póst á netfangið umhverfi@hvalfjardarsveit.is